Barcelona byrjar vel í Katar

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Twitter FCB

Barcelona vann níu marka sigur 37:28 á liði Al Najma frá Bahrain á HM félagsliða sem hófst í Doha í Katar í dag. 

Aron Pálmarsson var ekki í leikmannahópi Barcelona að þessu sinni en liðið er núverandi meistari í keppninni og hefur alls þrívegis unnið hana. 

Franska stórliðið Montpellier, sem sigraði í Meistaradeild Evrópu í sumar, vann einnig öruggan sigur á AS Hammamet frá Túnis 30:22. 

Bjarni Már Elísson tekur einnig þátt í keppninni með Füsche Berlin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert