Bjarki Már og félagar í undanúrslit á HM

Bjarki Már Elísson í leik með Füchse Berlín.
Bjarki Már Elísson í leik með Füchse Berlín. AFP

Bjarki Már Elísson og félagar hans í þýska liðinu Füchse Berlín eru komnir í undanúrslit á heimsmeistaramótinu félagsliða í handknattleik sem hófst í Doha í Katar í dag.

Füchse Berlín vann öruggan sigur gegn brasilíska liðinu Taubate 33:25 eftir að hafa verið yfir í leikhléi 19:11. Bjarki skoraði 3 mörk í leiknum en þýska liðið stefnir á að vinna heimsmeistaratitilinn í þriðja sinn. Bjarki Már var í sigurliðinu í tvö fyrstu skiptin.

Fyrr í dag tryggði Barcelona sér farseðilinn í undanúrslitin eftir sigur á Al Najma frá Bahrain 37:28. Aron Pálmarsson var hvíldur í liði Barcelona.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert