Grátlegt tap hjá Ágústi

Ágúst Elí Björgvinsson í marki Sävehof.
Ágúst Elí Björgvinsson í marki Sävehof.

Ágúst Elí Björgvinsson átti þokkalegan leik fyrir Sävehof sem tapaði á grátlegan hátt fyrir Redbergslids í efstu deild Svíþjóðar í handbolta í kvöld, 30:29. Redbergslids skoraði sigurmarkið í blálokin eftir æsispennu. 

Ágúst varði 10 skot í leiknum og var með tæplega 29 prósenta markvörslu, en hann gat ekki komið í veg fyrir sigurmarkið. 

Sävehof er í áttunda sæti deildarinnar með 14 stig eftir 13 leiki og í baráttu um að fara í úrslitakeppnina eftir deildarkeppnina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert