Bæjarar skoruðu fimm

Evrópumeistararnir voru í stuði í dag.
Evrópumeistararnir voru í stuði í dag. AFP

Evrópu- og heimsmeistarar Bayern München voru í stuði í dag og gerðu fimm mörk gegn Köln er liðin mættust í þýsku 1. deildinni í fótbolta í dag. Urðu lokatölur 5:1. 

Eric Maxim Choupo-Moting kom Bayern yfir á 18. mínútu og áður en flautað var til leiksloka voru Robert Lewandowski og Serge Gnabry báðir búnir að skora tvö mörk hvor. Ellyes Skhiri skoraði mark Köln er hann minnkaði muninn í 2:1 á 49. mínútu. 

Bayern er sem fyrr í toppsætinu, nú með 52 stig. Leipzig er í öðru sæti með 47 stig, en Leipzig getur minnkað forskotið aftur niður í tvö stig með sigri á Borussia Mönchengladbach síðar í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert