KA/Þór á toppinn

Ragnheiður Tómasdóttir skoraði sjö mörk í dag.
Ragnheiður Tómasdóttir skoraði sjö mörk í dag. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

KA/Þór fór upp í toppsæti Olísdeildar kvenna í handbolta með öruggum 34:17-sigri á FH á heimavelli í dag. FH er enn á botninum án stiga. 

Yfirburðir KA/Þórs voru miklir og var staðan 11:3 þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður og staðan í hálfleik 19:5. Seinni hálfleikurinn reyndist formsatriði fyrir KA/Þór og sigurinn afar öruggur. 

Ásdís Guðmundsdóttir og Hulda Bryndís Tryggvadóttir skoruðu sjö mörk hvor fyrir KA/Þór og Ragnheiður Tómasdóttir skoraði sex fyrir FH. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert