Góður leikur landsliðsmannsins

Jón Axel Guðmundsson lék vel þrátt fyrir tap.
Jón Axel Guðmundsson lék vel þrátt fyrir tap. Ljósmynd/FIBA

Landsliðsmaðurinn Jón Axel Guðmundsson lék vel þrátt fyrri tap Alicante fyrir Real Betis, 78:73, í spænsku B-deildinni í körfubolta í kvöld. 

Jón Axel var næststigahæstur í liði Alicante með 12 stig. Þá tók hann einnig fjögur fráköst og gaf sex stoðsendingar. 

Alicante er í sjötta sæti deildarinnar með 44 stig, tveimur stigum frá toppnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert