Mohamed Salah, sóknarmaður egypska landsliðsins í knattspyrnu er í byrjunarliðinu í dag þegar Egyptaland og Rússland mætast í annarri umferð A-riðils heimsmeistaramótsins í Pétursborg. Salah var ekki með í fyrsta leik Egypta gegn Íran sem lauk með 1:0 sigri Íran.
Salah meiddist á öxl í úrslitum Meistaradeildarinnar í lok maí og hefur ekki spilað síðan. Egyptar verða að vinna eða gera jafntefli í dag til þess að eiga möguleika á því að fara áfram í útsláttakeppnina. Rússar unnu stórsigur á Sádí-Arabíu í upphafsleik mótsins, 5:0 og dugar sigur í dag til þess að tryggja sig áfram í sextán liða úrslitin.