Íslendingar voru duglegir að láta skoðanir sínar í ljós á samfélagsmiðlum eftir að Ísland tryggði sér sæti í milliriðlum heimsmeistaramótsins í handknattleik eftir magnaðan sigur á Makedóníu, 24:22.
Íslenska liðinu dugði jafntefli til þess að komast áfram og var undir lengi vel framan af, meðal annars 13:11 í hálfleik. Í síðari hálfleik var íslenska liðið með mun meira á tankinum og sigldi frækilegum sigri heim.
Hér að neðan má sjá brot af umræðunni á Twitter eftir leikinn, en óhætt er að segja að landsmenn hafi verið kátir.
19 ára allt í öllu í sókninni, Gísli Þorgeir. Hvernig verður hann eftir 1-2 stórmót? #HandballWM
— Höddi Magg (@HoddiMagnusson) January 17, 2019
Leikur Makadóna einsog íslenska krónan, langdreginn og hægur dauðdagi #hmruv
— Thorsteinn J. (@Thorsteinnj) January 17, 2019
Takk handboltaguðir að losa okkur við þetta þrotaða handboltalið frá Makedóníu. Og takk líka strákar. #léttir
— Benedikt Gretarsson (@bennigretars) January 17, 2019
Jesssssss🇮🇸
— Aron Einar (@ronnimall) January 17, 2019
Hell yeahh 😀😀😀😀😀😀😆😀😀😆😆😆😆😆😆😆😆😆 #hmruv
— Gaui Árna (@gauiarna) January 17, 2019
Djöfull eru þetta miklir fokking töffarar!!!!! #hmruv
— Eyþór Helgi (@EysiBirgis) January 17, 2019
JESSSSSS ÍSLAND!!!! #hmruv #Handball19
— Guðjón (@Gudjong16) January 17, 2019
Þessi landslið okkar í boltaíþróttum verða ástæða þess að ég fæ hjartaáfall!! GEGGJUÐ FKN VÖRN! Bjöggi að rústa á réttu mómentum!! #hmruv
— Kristín Lovísa (@Lobbsterinn) January 17, 2019
Þvílíkir strákar! Gísli og Arnór geggjaðir! #hmruv
— Lárus H. Ásgeirsson (@larusasgeirs) January 17, 2019
Þvílíkur gæjar þvílíkur karakter. Gleymum ekki að hálft liðið er kjúklingar!!! Bíð spenntur eftir milliriðlum #hmruv
— Gaui Árna (@gauiarna) January 17, 2019
Þvílík innkoma hjá Gísla!!! Karfturinn sem hann kom með í sóknarleikinn var akkurat það sem þurfti. Það verður gaman að sjá hann sem lykilmann á næstuárum 💪💪#hmruv
— Kalex€ (@Kalex_270) January 17, 2019
framtíðin er svo sannarlega björt, vel gert #strákarnirokkar #HMruv
— Gudmundur Bergsson (@bergsson81) January 17, 2019
Get in baby!! 🇮🇸🇮🇸
— Rikki G (@RikkiGje) January 17, 2019