Sameiginlegt lið Norður- og Suður-Kóreu í íshokkíi kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang vakti mikla athygli á leikunum, en þátttöku liðsins er nú lokið.
Um var að ræða fyrsta skiptið sem þjóðirnar tefla fram sameinuðu liði. Fulltrúar beggja þjóða ákváðu þetta fyrir leikana í viðræðum sem fram fóru á hlutlausu svæði sem skilur á milli landanna tveggja í von um aukna þíðu þeirra á milli.
Í dag spilaði Kórea við Svíþjóð í leiknum um 7. sætið en mátti sætta sig við stórtap, 6:1. Eftir leikinn stóðu áhorfendur hins vegar upp og klöppuðu liðinu lof í lófa.
Lið Kóreu spilaði fimm leiki á leikunum, fékk á sig 28 mörk og skoraði fimm mörk og hafnaði í 8. sæti af átta liðum.