Henry Kristófer Harðarson varð í gærkvöldi Danmerkurmeistari í íshokkí með liði Aalborg Pirates.
Aalborg Pirates hafði betur gegn Herning Blue Fox, 6:1, í sjötta úrslitaleik liðanna og vann þar með einvígið, 4:2.
Þetta er í fyrsta sinn í 37 ár sem Aalborg Pirates hampar danska meistaratitlinum en fyrr á leiktíðinni vann liðið sigur í dönsku bikarkeppninni.
Henry Kristófer, sem er 23 ára gamall, var útnefndur maður leiksins en hann er fæddur í Vestmannaeyjum en fluttist ungur að árum til Kaupmannahafnar. Hann hefur einnig spilað með dönsku liðunum Rødovre, Odense og Esbjerg. Þegar hann var 18 ára var hann eina leiktíð hjá kanadíska liðinu Regina Pats sem leikur í WHL-deildinni, þeirri næstu fyrir neðan sjálfa NHL-deildina í Norður-Ameríku, en þaðan fór hann til Svíþjóðar og svo aftur til Danmerkur árið 2013.