Enn tapa Hörður og félagar

Hörður Axel Vilhjálmsson
Hörður Axel Vilhjálmsson mbl.is/Eva Björk

Hörður Axel Vilhjálmsson átti ágætan leik fyrir Mitteldeutscher í þýsku 1. deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Það dugði þó ekki til því liðið tapaði fyrir Crailsheim á útivelli, 73:71.

Hörður Axel lék í 30 mínútur og gerði hann 15 stig, tók tvö fráköst og átti fjórar stoðsendingar á félaga sína. Það dugði hins vegar ekki og fjórða tap liðsins í röð var staðreynd, nú gegn liðinu í neðsta sæti deildarinnar, en Mitteldeutscher er í áttunda sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert