Martin með góðan leik í sigri

Martin Hermannsson
Martin Hermannsson Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

Martin Hermannsson átti góðan leik fyrir Chalons-Reims sem lagði Limoges, 89:79, í frönsku A-deildinni í körfubolta í kvöld. Martin skoraði 11 stig, tók sex fráköst og gaf sex stoðsendingar á rúmum 30 mínútum. 

Chalons-Reims hefur farið nokkuð vel af stað í deildinni og unnið fjóra af fyrstu sex leikjum sínum. Martin og félagar eru í 5. sæti af 18 liðum, en franska deildin er með sterkustu deildum Evrópu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert