Lakers sneri taflinu við

Bobby Portis og Kyle Kuzma eltast við boltann í nótt.
Bobby Portis og Kyle Kuzma eltast við boltann í nótt. AFP

Los Angeles Lakes vann seiglusigur gegn Chicago Bulls þegar liðin mættust í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

Lakers var undir í hálfleik 56:42 og lenti mest 19 stigum undir, en í síðari hálfleik snerist dæmið við og Lakers fagnaði sigrinum 103:94.              

Kyle Kuzma var stigahæstur hjá Lakers með 22 stig, en Lonzo Ball stal senunni með 13 fráköst. Hjá Bulls var allt byrjunarliðið með tveggja stiga tölu í stigaskorun, en stigahæstur var Denzel Valentine með 17 stig.

Lakers er í 8. sæti vesturdeildarinnar, hefur unnið 8 leiki en tapað 10, á meðan Bulls er í næstneðsta sæti austurdeildar með 3 sigra en 12 töp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert