Hildur Björg í harðri toppbaráttu

Hildur Björg Kjartansdóttir á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta.
Hildur Björg Kjartansdóttir á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði átta stig, tók sjö fráköst og gaf eina stoðsendingu þegar lið hennar, Leganés, lagði Distrito Olimpico að velli, 58:48, í spænsku B-deildinni í körfubolta kvenna í kvöld.

Leganés er í öðru sæti deildarinnar með tíu sigurleiki og tvö töp á bakinu, en liðið hefur borið sigur úr býtum í einum leik færra en Spar Gran Canaria sem situr taplaust í toppsæti deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert