Urald King í Tindastól

Urald King í leik með Val.
Urald King í leik með Val. mbl.is/Árni Sæberg

Bandaríski körfuboltamaðurinn Urald King mun leika með Tindastóli á næstu leiktíð, en hann hefur spilað með Val undanfarin tvö ár. Karfan.is greinir frá. 

King fór upp úr 1. deild með Val árið 2017 og var lykilmaður í að liðið hélt sér uppi á síðasta tímabili. Antonio Hester snýr ekki aftur á Sauðárkrók, þar sem hann hefur leikið síðustu tvö ár, og er King ætlað að fylla í hans skarð. 

Urald King skoraði 22,9 stig og tók 14 fráköst að meðaltali í leik fyrir Val í vetur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert