Bjarni Geir í Breiðablik

Bjarni Geir Gunnarsson mun leika með Breiðablik í úrvalsdeild karla …
Bjarni Geir Gunnarsson mun leika með Breiðablik í úrvalsdeild karla á næstu leiktíð. Ljósmynd/Breiðablik

Bjarni Geir Gunnarsson hefur samið við Breiðablik um að spila með liðinu í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á komandi keppnistímabili.  Bjarni er uppalinn Bliki sem hefur leikið annars staðar undanfarin ár en hefur nú snúið aftur heim.

Bjarni var síðast í herbúðum Stjörnunnar en gat lítið beitt sér fyrir Garðabæjarliðið þar sem hann var að glíma við erfið meiðsli. Hann hefur nú náð sér af meiðslum sínum og er farinn æfa með Blikum af fullum krafti.

Bjarni sem er fæddur árið 1995 er sterkur varnarmaður og góð þriggja stiga skytta með. Hann er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst nokkrar stöður á vellinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert