Risaskipti hjá Toronto og San Antonio

DeMar DeRozan í leik með Toronto.
DeMar DeRozan í leik með Toronto. AFP

Stærstu leikmannaskipti sumarsins til þessa í NBA-körfuboltanum hafa verið staðfest. Kawhi Leonard og Danny Green yfirgefa San Antonio Spurs fyrir Toronto Raptors og fær liðið DeMar DeRozan og Jakob Poeltl í þeirra stað.

Kawhi Leonard og DeMar DeRozan hafa verið með allra bestu leikmönnum sinna liða á undanförnum árum, en skiptin koma nokkuð á óvart. Flestir bjuggust við að Leonard færi til Lakers og DeRozan hefur sagt oftar en einu sinni að hann vildi spila hjá Raptors allan ferilinn. 

Leonard á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum á meðan DeRozan á þrjú á eftir af sínum. Leonard gæti því leitað annað á næsta ári og gæti hann þá fengið að spila með LeBron James hjá Lakers. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert