Samherji Dags Kárs Jónssonar hjá Wels Flyers í austurrísku úrvalsdeildinni í körfuknattleik var kýldur hnefahöggi í leik liðsins gegn Kapfenberg.
Atvikið var ljótt eins og sjá má í myndskeiði sem birt er á netmiðlinum Karfan.is en samherji Dags, Erwin Zulic, fékk heilahristing.
Kapfenberg er núverandi meistari og hefur félagið rekið leikmanninn sem um ræðir: David Samuels.