Dagur stoðsendingahæstur í tapi

Dagur Kár Jónsson gaf sjö stoðsendingar í austurrísku úrvalsdeildinni í …
Dagur Kár Jónsson gaf sjö stoðsendingar í austurrísku úrvalsdeildinni í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Dagur Kár Jónsson átti fínan leik fyrir Flyers Wels og var stoðsendingahæsti leikmaður liðsins gegn Vienna Timberwolves í austurrísku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag en leiknum lauk með 101:85-útisigri Vienna Timberwolves.

Vienna Timberwolves vann fyrsta leikhlutann með 9 stigum og áttu heimamenn í Flyers Wels erfitt með að brúa það bil það sem eftir lifði leiks. Staðan í hálfleik var 49:37, Vienna Timberwolves í vil, og Flyers tókst ekki að koma til baka í síðari hálfleik.

Dagur Kár skoraði 12 stig fyrir Flyers Wels, tók eitt frákast og gaf sjö stoðsendingar en hann spilaði í rúmar 33. mínútur í leiknum í dag. Flyers Wels er í áttunda sæti deildarinnar með 6 stig eftir fyrstu átta umferðirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert