SI velur lið sem íþróttamann ársins

Leikmenn Golden State Warriors fagna sigri í NBA-deildinni í júní.
Leikmenn Golden State Warriors fagna sigri í NBA-deildinni í júní. AFP

Hið víðfræga tímarit Sport Illustrated hefur valið Golden State Warriors íþróttamann ársins hjá tímaritinu og er þetta í fjórða sinn sem lið verður fyrir valinu hjá tímaritinu. 

Golden State sigraði í NBA-deildinni í sumar eins og íþróttaáhugafólk þekkir en aðrir sem til greina komu voru rússneski íshokkímaðurinn Alexander Ovechkin, fyrirliði NHL meistaranna í Washington Capitals, bandaríski kylfingurinn Tiger Woods og bandaríski körfuknattleiksmaðurinn LeBron James. 

Í hin skiptin sem Sport Illustrated hefur valið lið í stað einstaklings voru það bandaríska landsliðið í íshokkí árið 1980, bandaríska kvennalandsliðið í knattspyrnu árið 1999 og hafnaboltaliðið Boston Red Sox árið 2004. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert