Sara lék vel en það dugði ekki til

Sara Rún Hinriksdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Sara Rún Hinriksdóttir í leik með íslenska landsliðinu. Ljósmynd/Óttar Geirsson

Fjórtán stig og fimm fráköst frá Söru Rún Hinriksdóttur dugðu ekki til í 19 stiga tapi Faenza gegn Schio, 70:89, í ítölsku A-deildinni í körfubolta í kvöld.

Faenza er í 9.-11. sæti deildarinnar með 12 stig en liðin í 10.-13. sæti þurfa í umspil um sæti í A-deild að ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert