Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson lék vel fyrir Alicante er liðið vann tíu stiga heimasigur á Leymna Coruna í B-deild spænska körfuboltans í kvöld, 84:74.
Jón Axel skoraði 14 stig, tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsendingar á 27 mínútum.
Alicante er í sjöunda sæti deildarinnar með 50 stig eftir 31 leik og á leiðinni í umspil um sæti í deild þeirra bestu.