Stakk kærustuna tuttugu sinnum

Malil í hlutverki sínu í kvikmyndinni The 40-Year-Old Virgin.
Malil í hlutverki sínu í kvikmyndinni The 40-Year-Old Virgin.

Leikarinn Shelley Malil sem lék smáhlutverk í kvikmyndinni The 40-Year-Old Virgin játaði í gær að hafa stungið kærustu sína tuttugu sinnum með eldhúshníf árið 2008. Malil segist hafa haldið að hún væri einhver annar en mikið  myrkur var þegar atburðurinn átti sér stað.

„Mér þykir þetta leitt,“ segir hinn 45 ára gamli Malil. „Ég hafði enga hugmynd um að þetta væri hún fyrr en ég sá myndir af vettvangi. Ég trúi því ekki enn að hnífurinn sem ég hélt á hafi valdið þessum hræðilegu afleiðingum.“

Malil réð ekki lögfræðing til að verja sig held kaus að verja sig sjálfur í málinu. Hann heldur því fram að hann hafi aldrei ætlað sér að meiða hina 38 ára gömlu Kendra Beebe. Hann segir mikil læti hafa brotist út skyndilega á heimili hennar í San Diego og kveðst ekki muna mikið eftir umræddu kvöldi.

Shelley Malil lék einn samstarfsfélaga Steve Carrell í myndinni The 40-Year-Old Virgin en hefur ekki leikið í neinum þekktum kvikmyndum síðan þá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson