Eiginmaðurinn reyndist kona

Indversk kona bjó með eiginmanni sínum í heilt ár áður en hún komst að því að hún hafði í raun gifst konu.

Hin 26 ára gamla Minati Khatua frá Rourkela giftist hinum 28 ára gamla Sitakant Routray fyrir rúmu ári síðan. „Hann gabbaði alla í fjölskyldunni minni og faðir minn samþykkti brúðkaupið,“ sagði Khatua í viðtali við Calcutta Telegraph. 

Samkvæmt hefðinni í Indlandi greiddi fjölskylda Khatua með henni og allt lék í lyndi þar til Khatua fór að gruna að Routray væri ekki allur þar sem hann væri séður.

„Hann forðaðist alla líkamlega tjáningu ástar okkar,“  útskýrði Khatua í viðtalinu og sagði allar tilraunir sínar til að komast að leyndarmáli eiginmannsins hafa misheppnast.

Einn daginn kom hún þó að eiginmanninum í baði og kom þá í ljós að um konu var að ræða. 

Lögreglan í Rourkela er enn að rannsaka málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson