20 hlutir sem gera þig ekki ólétta

Þessi er áhyggjufull vegna skítugrar klósettsetu.
Þessi er áhyggjufull vegna skítugrar klósettsetu. Shutterstock / Monkey Business Images

Hefur þú einhvern tíma átt stundarbrjálæðis augnablik þar sem þú hélst að þú værir ólétt þrátt fyrir að hafa ekki stundað kynlíf síðustu mánuði, nú eða bara yfirhöfuð?

Ef svo er þá gæti þessi handhægi listi frá Cosmopolitan gagnast þér en á honum virðist vera rík þörf ef eitthvað er að marka Yahoo. Eins gagnast listinn að sjálfsögðu áhyggjufullum ástmönnum sem eru alls ekki tilbúnir í að vera feður, aðallega af því að þeir vita ekki hvernig börn eru búin til. Fyrir þau sem ekki vita er almenna reglan sú að sæði þarf að berast í leggöng konu til þess að getnaður geti átt sér stað.

Það skal ekki skilið sem svo að þú eigir þar af leiðandi að hlaupa út og gera allt á listanum og vert er að muna að þó svo að þungun sé ómöguleg með þeim leiðum sem hér eru taldar upp þá er kynsjúkdómasmit það svo sannarlega ekki. Mundu að mánudagar eru uppfullir af hefndarþorsta.

1. Þú getur ekki orðið ólétt af því að veita munngælur.

2. Þú getur ekki orðið ólétt af því að fá munngælur.

3. Þú getur ekki orðið ólétt af því að sitja í kjöltunni á karlmanni sem er í buxum. 

4. Þú getur ekki orðið ólétt af kynferðislegum hugsunum.

5. Þú getur ekki orðið ólétt af því að nota hluti til sjálfsfróunar. 

6. Þú getur ekki orðið ólétt af klósettsetu.

7. Þú getur ekki orðið ólétt af því að fróa karlmanni í heitum potti. 

8. Þú getur ekki orðið ólétt af endaþarmsmökum.

9. Þú getur ekki orðið ólétt ef þú ert ólétt fyrir. 

10. Barnið þitt getur ekki orðið ólétt þó svo að þú stundir kynlíf á meðan þú ert ólétt. 

11. Þú getur ekki orðið ólétt af því að nudda þér fullklæddri við annan einstakling. 

12. Þú getur ekki orðið ólétt af því að einhver frói þér.

13. Þú getur ekki orðið ólétt af því að læra lagið úr The Fresh Prince of Bel-Air utan að.

14. Þú getur ekki orðið ólétt af því að hugsa of mikið.

15. Þú getur ekki orðið ólétt af því að líta í augun á schnauzerhundi.

16. Þú getur ekki orðið ólétt af því að borða kjúklinginn frá General Tso.

17. Þú getur ekki orðið ólétt af því að hata mánudaga.

18. Þú getur ekki orðið ólétt af því að dansa eins og enginn sjái til.

19. Þú getur ekki orðið ólétt af því að horfa á Leitin að Nemó með litlu frænku þinni.

20. Þú getur ekki orðið ólétt af því að þurrka olíuna af pítsunni þinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson