Georg Prins er mikið sjarmatröll eins og hann sýndi og sannaði í fyrstu opinberu heimsókn sinni til Nýja Sjálands. Þar gafst sótsvörtum almúganum tækifæri til að kynnast litla prinsinum aðeins betur en hann kaus að afhjúpa nokkra persónueiginleika fyrir sínum auðmjúku þegnum við það tækifæri.
1. Hann er maður fólksins
2. En sem erfingi krúnunnar lætur hann ekki fara með sig hvernig sem er.
3. Hann þiggur svo sannarlega ekki mútur, allavega ekki þær sem eru fyrir neðan hans konunglegu virðingu.
4. Hann hefur ekki tíma fyrir neitt rugl því konungsríkið þarfnast hans.
5. Hann lætur ekki gabba sig auðveldlega.
6. Hann vill að þegnar sínir lifi hamingjusömu lífi.
7. En það þarf meira en nýstraujuð jakkaföt til að ganga í augun á honum.
8. Hann þolir ekki að þurfa að endurtaka sig.
9. Hann er með öll réttu danssporin á hreinu.
10. Hann veit að alþýðan er uppfull af sýklum.
11. Hann gerir sér fulla grein fyrir þeim áhrifum sem hann hefur á kvenþjóðina.
12. Sérstaklega þegar hann er í stuttbuxum.
13. Hann er alveg jafn heillaður af hári Kate Middleton og restin af heimsbyggðinni.