Þorp til sölu á eBay

Ljósmynd/eBay

Hvað gerðir þú við peningana sem frúin í Hamborg gaf þér? Ef hún gaf þér 40 milljónir eða svo getur þú fjárfest í bílum, íbúð, nú eða heilu þorpi á Ítalíu.

Þorpið heitir Borgata Calsazio og getur verið þitt fyrir aðeins 245 þúsund evrur en þorpið er til sölu á eBay. Þorpið er ekki hægt að fá heimsent og ekki er boðið upp á endurgreiðslu eða skipti eftir að salan er gengin í gegn.

Í þorpinu eru 14 heimili með 50 herbergjum í allt. Sá sem stendur fyrir sölunni gengur einungis undir nafninu „it2014.piemo“ en viðkomandi segir Borgata Calizio vera hentuga staðsetningu til að búa á og stofna fyrirtæki í kringum ferðamannaiðnaðinn.

Eignirnar þarfnast allar nokkurs viðhalds og skyldi engan undra miðað við verðmiðan auk þess sem er þorpið kyrfilega merkt „notað“ á sölusíðunni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson