Innipúkinn, þriggja daga tónlistarveisla yfir verslunarmannahelgina, fer fram í Reykjavík í ár sem fyrr. Skemmtistaðirnir Húrra og Gaukurinn verða undirlagðir af hljómsveitum og tónleikagestum frá föstudegi fram á sunnudagskvöld en einnig verður gatan Naustin undirlögð af tónlistartengdum viðburðum meðan á hátíðinni stendur.
Bæði verður boðið upp á blandaða dagskrá og sérstök þemakvöld sem skiptast í rokk, elektróník og hiphop.
Eftirfarandi tónlistarmenn og hljómsveitir koma fram á Innipúkanum:
Snorri Helgason
Justman
Dj flugvél og geimskip
Borko & Futurgrapher
Orphic Oxtra
Ojba Rasta
Loji
Kvöl
Low Roar
Benni Hemm Hemm
Mr. Silla
Amaba Dama
Fufanu
Mosi Musik
Markus & TDS
Ólöf Arnalds
Boogie Trouble
Megas + Grísalappalísa
Börn
Pink Street Boys
Kælan Mikla
Logn
Muck
Good Moon Deer
Quadruplos
Futuregrapher
Tanya & Marlon
Sísí Ey
Shades of Reykjavík
Cryptochrome
7berg
Reykjavíkurdætur
Kött Grá Pje
DJ Myth & Lazybones