Minningarsjóður Jóhanns Péturs - Sjálfsbjörg

Minningarsjóður Jóhanns Péturs - Sjálfsbjörg

Kaupa Í körfu

ÚTHLUTAÐ var úr minningarsjóði Jóhanns Péturs Sveinssonar, fyrrum lögfræðings og formanns Sjálfsbjargar, í gær. Markmið minningarsjóðsins er að styrkja hreyfihamlaða einstaklinga til náms með ýmsu móti og einnig að styrkja einstök málefni varðandi aðgengi fatlaðra....Meðal styrkþega var Aðalbjörg Guðgeirsdóttir sem hlaut styrk að upphæð 150.000 kr. Aðalbjörg hefur verið að safna sér fyrir hjálpartæki framan á hjólastól sinn, en það myndi auðvelda henni daglegt líf og auka möguleika hennar til útivistar.MYNDATEXTI: Bjartsýn Aðalbjörg Guðgeirsdóttir fékk styrk úr minningarsjóðnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar