Dansnámskeið - DanceCenter

Dansnámskeið - DanceCenter

Kaupa Í körfu

Á ÞRIÐJA hundrað dansara fjölmennti á námskeið DanceCenter Reykjavík sem haldið var um síðustu helgi í íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardalnum. Að þessu sinni voru það hinir þekktu dansarar Dan Karaty og Shane Sparks sem leiðbeindu íslenskum dönsurunum en sjónvarpsáhorfendur kannast ef til vill við þá félaga úr þáttunum So You Think You Can Dance? sem Skjár einn sýndi á síðasta ári. MYNDATEXTI: Taktviss Íslensku dansararnir sýndu góða takta á námskeiðinu en þrátt fyrir að vera hljóðlátir og kurteisir braust krafturinn fram í dansinum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar