Kveðjupartý heima hjá Friðriki Ómar

Kveðjupartý heima hjá Friðriki Ómar

Kaupa Í körfu

EUROBANDIÐ hélt í gærmorgun til Serbíu, en þar mun sveitin flytja framlag Íslands í undankeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hinn 22. maí. Í tilefni af því bauð Friðrik Ómar Hjörleifsson, söngvari Eurobandsins, til mikillar veislu á heimili sínu á föstudagskvöldið. Eins og sjá má fjölmenntu vinir og velunnarar sveitarinnar, og ekki er annað að sjá en þeir hafi skemmt sér vel. MYNDATEXTI: Brugðið á leik Páll Óskar, Sigmar Guðmundsson og Þórhallur Gunnarsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar