Marc Jacobs birti óvart nektarmynd á Instagram

Hönnuðurinn Marc Jacobs birti fyrir mistök nektarmynd á Instagram.
Hönnuðurinn Marc Jacobs birti fyrir mistök nektarmynd á Instagram. Instagram /AFP

Hönnuðurinn Marc Jacobs lenti í afar óskemmtilegri lífsreynslu á mánudaginn þegar hann birti óvart nektarmynd á Instagram.

Jacobs birti mynd af rassi sínum og það sást einnig glitta í getnaðarlim hans. Við myndina skrifaði hann: „þú mátt prófa hann“. Jacobs ætlaði að senda myndina sem einkaskilaboð í gegnum Instagram en ekki vildi betur til en að myndin birtist á myndaveitu þeirra 200.000 einstaklinga sem fylgja honum á forritinu.  

Hinn 52 ára Jacobs var fljótur að eyða myndinni en það var um seinan, auðvitað höfðu einhverjir netverjar náð skjáskoti af færslunni.

Í leiðinni er vel við hæfi að birta viðtal sem Marta María Jónasdóttir tók við Marc Jacobs í Lundúnum:

Æfir í tvo tíma á dag og borðar ekki mjólkurvörur

Marc Jacobs er virkur á Instagram.
Marc Jacobs er virkur á Instagram. Instagram @themarcjacobs
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál