Elísabet Gunnars og Gunnar Steinn eiga von á barni

Elísabet, Alba og Gunnar.
Elísabet, Alba og Gunnar.

Elísabet Gunnarsdóttir, tískubloggari og eigandi vefsíðunnar Trendnet, og unnusti hennar, handboltakappinn Gunnar Steinn Jónsson, eiga von á barni.

Barnið er væntanlegt í heiminn í janúar. Elísabet birti sæta bumbumynd á Instagram á dögunum þar sem hún tilkynnti barnalánið.

„Mér fylgir lítill laumufarþegi hvert sem ég fer þessa dagana. Við fjölskyldan ætlum nefnilega að stækka á nýju,“ skrifaði Elísabet.

Elísabet og Gunnar eiga eina dóttur fyrir, Ölbu Mist sem er sex ára. Elísabet greindi frá því að dóttir þeirra væri afa spennt því hana hefur lengi dreymt um að verða stóra systir.

Elísabet Gunnars birti þessa bumbumynd á Instagram.
Elísabet Gunnars birti þessa bumbumynd á Instagram. Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál