Margur verður af aurum...

Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi.
Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir

„Líklega sagðirðu api, annað hvort upphátt eða í hljóði áður en þú smelltir til að lesa pistilinn. Orðatiltækið er eitt af mörgum sem endurspeglar víðteknar peningahugmyndir fólks. Það á uppruna sinn í Hávamálum og er inngreipt í samfélagslega vitund okkar, hvort sem við sem einstaklingar trúum því að margur verði af aurum api, eður ei,“ segir Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi hjá Edda Coaching í sínum nýjasta pistli:

Áhrif peningahugmynda

En hvaða áhrif hafa peninghugmyndir sem þessi í raun og veru á okkur sem einstaklinga? Þær hafa heilmikil áhrif því þær stýra peningahegðun okkar.

Sá sem trúir því undir niðri að margur verði af aurum api, leggur varla áherslu á að leggja fyrir og fjárfesta.

Peningar vaxa ekki á trjánum, er önnur algeng hugmynd. Þeir sem sitja uppi með þá hugmynd að þú þurfir að leggja mjög hart að þér fyrir hverja krónu sem þú aflar, verja gjarnan meiri tíma á vinnustaðnum en ástæða er til því þeir stjórnast af þeirri hugmynd að þú þurfir að vinna mikið fyrir laununum. Þeir sem eru sjálfstætt starfandi og sitja uppi með sömu hugmynd, þiggja gjarnan lægri laun fyrir hvert og eitt verkefni og eru störfum hlaðnir.

Þetta reddast

Þessi fræga hending sem er gjarnan notuð til að útskýra grunnstefið í íslenskri menningu og hugsunarhætti, einkennir fjármál margra einstaklinga og er jafnvel inngreipt í fyrirtækjarekstur. Reddingahugsunin kemur sér vel að mörgu leiti. Hún getur ýtt undir framleiðni, sköpunargleði og eflt liðsanda. Hún er grunnurinn að því að margir leggja gjarnan hart að sér um tíma, því þeir sjá fyrir betri tíð með blóm í haga. Segja má að þessi vertíðarhugsun stýri peningahegðun þjóðarinnar að mörgu leiti. Nú berast til að mynda fregnir af auknum hagvexti og stóraukinni kreditkortanotkun landans.

Vogun vinnur, vogun tapar

Skyndigróðahugsunin á sér einnig djúpar rætur og þarf ekki að fara langt aftur í tímann til að finna dæmi af gullgrafaraæði ýmiss konar sem geysað hefur eins og stormur víða um land. Má þar nefna laxeldi, refarækt, bankalán til kaupa á verðbréfum og nú síðast Airbnb. „Við verðum jú öll að redda okkur“ er gjarnan viðkvæðið.

Gott ráð

Það er áhugaverð iðja að virða sjálfan sig fyrir sér úr fjarlægð og velta því fyrir sér hvaða hugmyndir liggja að baki peningahegðun okkar. Að hversu miklu leyti stjórnast þú af umhverfi þínu eða jafnvel bakgrunni þínum? Skuldir, gjaldþrot og peningaleysi valda því gjarnan að fólk situr uppi með skömm. Aðrir sitja uppi með skömm vegna peningahegðunar sinnar. Hvort sem það er vegna peninganotkunar (eyðslu) eða jafnvel velmegunar. Hugsaðu málið og settu peningahugmyndir þínar í samhengi við peningahegðunina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál