Fimm ráð til að ná betri tökum á fjármálunum

Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi.
Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir

„Mörgum finnst tilhugsunin um fjármál og fjármálaumsýslu hreinlega leiðinleg. Ég var í hópi þess fólks um áraraðir og þess vegna fann ég skemmtilegar og skapandi leiðir til að ná tökum á fjármálunum þegar ég ákvað að verða fjárhagslegur leiðtogi í eigin lífi,“ segir Edda Jónsdóttir, leiðtogamarkþjálfi hjá Edda Coaching, í sínum nýjasta pistli: 

Ég viðurkenni þó fúslega að skattaskýrslur og bókhald eru enn á listanum yfir það sem mér finnst hreinlega leiðinlegt. Góðu fréttirnar eru þær að það má auðveldlega útvista slíkum verkum til þeirra sem ferst betur úr hendi að leysa þau.

En þó verð ég að segja að með hverju árinu sem líður verða fjármálin meira aðlaðandi. Það hefur bæði með mitt eigið viðhorf og nálgun að gera.

 

Ef þú ert meðal þeirra sem vilja ná betri tökum á fjármálunum koma hér nokkur hagnýt ráð:

  1. Taktu þér tíma vikulega til að skoða fjármálin. Ekki bara til að greiða reikninga, heldur einnig til að gera áætlanir.
  2. Lækkaðu kostnað. Farðu yfir kostnaðinn þinn reglulega. Skoðaðu allan fastan kostnað að minnsta kosti tvisvar sinnum á ári. Notarðu allt sem þú ert með í áskrift? Geturðu fengið betra verð hjá öðru fyrirtæki, o.s.frv. Þetta telur allt.
  3. Peningalaus dagur. Hafðu það fyrir reglu að hafa að minnsta kosti einn peningalausan dag í viku. Taktu með þér nesti og skipuleggðu þig vel. Þetta er skemmtileg æfing og býr til meðvitund um hversu mikilvægir peningar eru í daglegu lífi okkar.
  4. Búðu þér til varasjóð. Það kemur alltaf eitthvað upp á, svo í stað þess að flokka það sem „óvænt útgjöld“ geturðu mætt bílaviðgerðum og viðlíka með bros á vör.
  5. Seldu það sem þú notar ekki. Áttu fatnað eða hluti sem þú hefur engin not fyrir? Það er bæði efnahagslega hagkvæmt og umhverfisvænt að gefa það sem enginn notar heima hjá þér, nýtt líf hjá nýjum eiganda.

Finndu fleiri leiðir til að ná betri tökum á þínum fjármálum og mundu að leyfa þér að nálgast fjármálin með skapandi hætti. Peningar geta nefnilega verið skemmtilegir! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál