Eyðir ekki tímanum í litlar ákvarðanir

Mark Zuckerberg er iðulega í gráum stuttermabol.
Mark Zuckerberg er iðulega í gráum stuttermabol. mbl.is/AFP

Mark Zuckerberg, stofnandi og framkvæmdastjóri Facebook, er upptekinn maður enda stýrir hann fyriræki sem snertir fjöldann allan af fólki. Hann fylgir því góðri rútínu og er skipulagður til þess að ná að koma öllu í verk.

Samkvæmt Independent vaknar Zuckerberg ekki fyrr en klukkan átta á morgnana. Eins og svo margir aðrir byrjar hann daginn á því að kíkja á Facebook og WhatsApp. Að því loknu fer hann út og hreyfir sig, reyndar bara þrisvar í viku. Þegar hann gerir það tekur hann hundinn sinn Beast með sér.

Þegar hann er búinn að hreyfa sig fær hann sér að borða. Zuckerberg hefur ekki óþarfa áhyggjur af því sem hann lætur ofan í sig heldur fær sér bara það sem hann langar til enda segist hann ekki eyða tíma í litlar ákvarðanir.

Talandi um litlar ákvarðanir þá klæðir hann sig oftast í eins föt. Vinnugallinn samanstendur af gallabuxum, strigaskóm og gráum stuttermabol.

Mark Zuckerberg.
Mark Zuckerberg. mbl.is/AFP

Zuckerberg er með her fólks sem hjálpar honum daglega en hann vinnur að meðaltali 50 til 60 tíma á viku. Á heimili hans eru vélmenni sem aðstoða hann á meðan hann er með 12 manns sem hjálpa honum að halda Facebook-síðu hans í góðum málum. 

Þegar hann er ekki að vinna gefur hann sér tíma til að þjálfa hugann en hann er að læra mandarín auk þess sem hann reynir að lesa eins mikið af bókum og hann getur, árið 2015 setti hann sér það markmið að lesa nýja bók á tveggja vikna fresti.

Þrátt fyrir að dagarnir séu langir og strangir er Mark Zuckerberg fjölskyldumaður og eignaðist hann nýlega dótturina Max með eiginkonu sinni, Pricillu Chan, og tók hann sér tveggja mánaða fæðingarorlof. Í mars síðastliðnum var síðan tilkynnt að hjónin ættu von á sínu öðru barni. Zuckerberg tekur greinilega föðurhlutverkið alvarlega og fer með bæn að hætti gyðinga fyrir dóttur sína þegar hann svæfir hana.

Dóttir Zuckerberg og eiginkonu hans Pricillu Chan heitir Max.
Dóttir Zuckerberg og eiginkonu hans Pricillu Chan heitir Max. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál