Í toppformi mánuði eftir barnsburð

Chontel Duncan slakaði ekki á því í ræktinni þótt hún …
Chontel Duncan slakaði ekki á því í ræktinni þótt hún væri barnshafandi. Skjáskot Daily Mail

Líkamlegt ástand þjálfarans, fyrirsætunnar og bloggarans Chontel Duncan var talsvert á milli tannanna á fólki fyrir skemmstu en hún þótti taka heldur til mikið á því í ræktinni. Það eitt og sér hefði líklega ekki í frásögur færandi, nema fyrir þær sakir að Duncan var barnshafandi.

Nú er Duncan aftur farin að vekja athygli, eða öllu heldur líkamlegt ástand hennar en tæpur mánuður er síðan sonur hennar kom í heiminn og ekki að sjá að móðirin hafi alið barn fyrir nokkrum dögum.

Á dögunum deildi Duncan mynd af sér þar sem hún var að koma úr fimm kílómetra gönguferð, en hún segist ætla að snúa aftur í ræktina að hálfum mánuði liðnum. Duncan tók það einnig fram að hún hafði fengið leyfi hjá lækni til að byrja að hreyfa sig, og að hún færi afar varlega.

„Ég er með svo mikla áráttu þegar kemur að líkama mínum, þannig að ég verð að fá leyfi fyrir öllu áður en ég fer og geri það. Ég myndi vera gjörsamlega miður mín ef ég myndi valda sjálfri mér skaða með því að hlusta ekki og vera of fljót á mér. Ef ég finn einhverja örlitla breytingu hringi ég strax í ljósmóðurina mína og spyr hana spjörunum úr.“

Frétt Daily Mail

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál