Karlotta prinsessa í notuðum skóm

Karlotta prinsessa var í skóm af Harry frænda sínum.
Karlotta prinsessa var í skóm af Harry frænda sínum. mbl.is/AFP

Katrín hertogaynja er þekkt fyrir að nýta fötin sín vel og sést hún reglulega í yfir tíu ára gömlum Penelope Chil­vers-stíg­vél­un­um. Þrátt fyrir að búa í höll lætur hún börn sín klæðast notuðum fötum rétt eins og annað fólk. 

Á mánudaginn sóttu Katrín og Vilhjálmur ásamt börnum sínum Pólland heim. Það vakti athygli að Karlotta prinsessa var í rauðum spariskóm sem frændi hennar Harry Bretaprins var í fyrir rúmum 30 árum.

Samkvæmt ABC News er hægt að finna fjölmörg dæmi þar sem Karlotta og Georg hafa klæðst fötum frá fólki í fjölskyldunni. Þegar fjölskyldan heimsótti Kanada í vetur klæddist Karlotta sömu bláu peysunni og Georg klæddist þegar hann fór upp á spítala að heilsa upp á Karlottu nýfædda. 

Karlotta litla í peysu af stóra bróður sínum.
Karlotta litla í peysu af stóra bróður sínum. mbl.is/AFP

Georg var í rauðum Rachel Riley stuttbuxum í skírn Karlottu en þetta eru eins buxur og Vilhjálmur klæddist þegar hann hitti Harry í fyrsta skipti. 

Rauðu buxurnar tilheyrðu áður föður Georgs, Vilhjálmi Bretaprins.
Rauðu buxurnar tilheyrðu áður föður Georgs, Vilhjálmi Bretaprins. mbl.is/AFP

Georg var í sömu bláu skriðbuxunum og faðir hans var í þegar hann var lítill. 

Vilhjálmur var eitt sinn í þessum bláu buxum.
Vilhjálmur var eitt sinn í þessum bláu buxum. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál