Katie Holmes horast niður á hráfæði

Katie Holmes.
Katie Holmes. GUS RUELAS

Hráfæði virðist málið þessa dagana ef marka má sérfræðingana og Katie Holmes er aldeilis sammála. Athygli hefur vakið undanfarið hvað hún hefur grennst mikið og ekki var hún mikil fyrir.

Að sögn heimildarmanna er hún þessa dagana á ströngum hráfæðiskúr sem hún fer oft á þegar hún þarf að undirbúa sig fyrir leik í kvikmyndum eða öðru slíku.

Að sögn heimildarmannsins er eiginmaður hennar, Tom Cruise, einstaklega hjálplegur og hvetjandi þegar hún tekur sig á í matarræðinu en er duglegur að verðlauna hana að tökum loknum. Fara þau þá gjarnan á steikarstaði enda bæði hrifin af kjöti.

Alla jafna borðar Holmes mjög hollt fæði og forðast hveiti og sykur eins og heitan eldinn - nema við sérstök tækifæri þegar gleðja á Suri, dóttur hennar.  

Katie Holmes.
Katie Holmes. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál