Þessi mynd hefur fengið 400.000 læk

Þriggja barna móðir kallar eftir vitundarvakningu.
Þriggja barna móðir kallar eftir vitundarvakningu. Instagram

Mynd af þriggja barna móður, með slit á maga, lafandi nafla - og allt, er orðin „viral“ á netinu og hefur, þegar þetta er skrifað, fengið rétt tæplega 400.000 læk á Facebook frá því hún var sett þar inn fyrir fimm dögum.

Með myndinni hvetur lífsstílsbloggarinn Rachel Hollis, sem er 32 ára, aðrar mæður til að gera slíkt hið sama og koma þannig í gang vitundarvakningu á samfélagsmiðlum um hvernig alvöru líkamar kvenna sem hafa alið af sér nokkur börn líta út. 

Eiginmaður Hollis tók Instagram myndina þar sem þau voru í fríi í Cancun í Mexíkó en við myndina skrifar mamman: 

„Ég er með slitför og ég er í bikiníi. Ég er með nafla sem verður að eilífu slappur eftir að ég gekk með þrjú börn og ég er í bikiníi. Naflinn á mér er linur (sem ég vissi ekki einu sinni að gæti gerst!!) og ég er í bikiníi. Ég er í bikiníi af því ég er stolt af þessum líkama og öllum ummerkjunum sem hann ber. Þessi ummerki eru til vitnis um að ég hlaut þá blessun að fá að bera börnin mín undir belti og þessi slappi kviður þýðir að ég vann að því að léttast. Ég er í bikiníi af því eini maðurinn sem mig varðar um veit hvað ég gekk í gegnum til að líta svona út. Sami maður segist aldrei hafa séð neitt kynþokkafyllra en líkamann minn, með slitförum og öllu. Þetta eru ekki ör dömur mínar, þetta eru rendur (eins og tígris), og þú vannst þér inn fyrir þeim.“

<a href="https://instagram.com/p/0fwr9Dl-VK/" target="_top">I have stretch marks and I wear a bikini. I have a belly that's permanently flabby from carrying three giant babies and I wear a bikini. My belly button is saggy... (which is something I didn't even know was possible before!!) and I wear a bikini. I wear a bikini because I'm proud of this body and every mark on it. Those marks prove that I was blessed enough to carry my babies and that flabby tummy means I worked hard to lose what weight I could. I wear a bikini because the only man who's opinion matters knows what I went through to look this way. That same man says he's never seen anything sexier than my body, marks and all. They aren't scars ladies, they're stripes and you've earned them. Flaunt that body with pride! #HollisHoliday</a>

A photo posted by Rachel Hollis (@msrachelhollis) on Mar 21, 2015 at 9:21am PDT

„Eini maðurinn sem mig varðar um veit hvað ég gekk …
„Eini maðurinn sem mig varðar um veit hvað ég gekk í gegnum til að líta svona út.“ Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál