Viltu glansandi diskóhægðir?

Hægt er að fá töflurnar í mismunandi litum.
Hægt er að fá töflurnar í mismunandi litum.

Það er kannski ekki mjög lekkert að tala um hægðir en þær eru engu að síður ákaflega mikilvægur þáttur í lífi hvers manns. Ef hægðirnar eru ekki góðar - þá er voðinn vís. Það hefur þó ekki verið hefð fyrir því að gera hægðirnar meira aðlaðandi en þær eru en það gæti þó verið að breytast.

Á vefsíðunni inquisitr.com eru menn greinilega snemma komnir í jólaskapið.  Þar eru auglýst forðahylki er innihalda glimmerefni sem ætlað er að gera hægðir inntakanda jólalegar.  Unnt er að velja úr mörgum litum en meðal annars er túrkiskblár fáanlegur í háglans en forðahylkin eru kynnt sem nýjung á sviði hægðamála sem gera hægðir þínar aðlaðandi, glansandi fínar. 

Þó fylgir böggull skammrifi því söluaðili hylkjanna mælir ekki með því að þeirra sé neytt.  Ekki er þó víst að allir fari að þeim ráðum enda ýmsir sem gera allt fyrir tískuna. Smartland Mörtu Maríu mælir ekki með neyslu hylkjanna og vonast eftir að lesendur finni aðrar leiðir til að koma sér í jólaskapið í hægðum sínum enda liggur ekkert á að fara að undirbúa jólin.  Það er jú bara október.

Þeir sem eru hrifnir af gulllituðu ættu að hoppa hæð …
Þeir sem eru hrifnir af gulllituðu ættu að hoppa hæð sína yfir þessum töflum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál