Hætt að léttast og alltaf þreytt? Hér eru 4 ástæður

Júlía heilsumarkþjálfi hjálpar fólki að ná tökum á ofþyngdinni.
Júlía heilsumarkþjálfi hjálpar fólki að ná tökum á ofþyngdinni.

Ert þú strand þegar kemur að þyngdartapi og orku? Eða finnst þér þú vera að gera allt rétt, en bara einhvernvegin ert ekki komin með þá þyngd eða líðan sem þú þráir?

Ef svo er er grein dagsins eitthvað fyrir þig. Deili ég með þér einhverju sem gæti trúlega stytt ferðalag þitt að meiri orku og meiri sátt í þínu skinni.

Þetta eru einmitt þeir hlutir sem héldu mér orkulausri, í basli við aukakíló og rugluðu alla eðlilega hormóna starfsemi líkamans sem olli frekari heilsukvillum (þar sem hormón eru stærsti áhrifavaldur heilsu okkar og þyngdartaps!),“ segir Júlía heilsumarkþjálfi í sínum nýjasta pistli á Smartlandi Mörtu Maríu:

4 hlutir sem halda þyngd og orkuleysi í stað

24_BellyFat02

1. Að borða fæðu sem heldur kílóum í stað og ýtir undir orkuleysi og verki

Vissir þú að allt að 75% manna eru með fæðuóþol- eða viðkvæmni án þess að vita af því?

Þetta sýnir rannsókn frá Dr. Natasha McBride og Dr. Mercola. Einnig hefur Dr. Mark Hyman (höfundur The Ultra Mind Solution) fundið tengsl á milli líkamskvilla og andlegrar depurðar og óþekkts fæðuóþols.

Það sem ég hef séð eftir að hafa unnið með yfir hunduði kvenna er að líkaminn okkar breytist og þær fæðutegundir sem þú neyttir þegar þú varst yngri eru ekki endilega þær fæðutegundir sem eru að gera þér gott í dag!

Því það sem svo mörgum okkar yfirsést er að fæðuóþol getur komið fram með tímanum og árunum (samkv. Doktor Elizabeth W. B Pharm).

Á meðan fæðuofnæmi sýnir okkur einkennin strax eftir neyslu þá geta einkenni fæðuóþols oft verið undirliggjandi og með tímanum valdið ójafnvægi í líkamanum eins og þyngdaraukningu, orkuleysi og liðverkjum.

Ef þetta ert þú þá gætir þú upplifað:

Reglulega uppþembu, vindgang, niðurgang, harðlífi, stöðuga svengd, orkuleysi, líkamskvilla, astma, exemi, höfuðverk, þyngdaraukningu, þyngdarstöðnun, verki í vöðvum og liðum, og þróttleysi.

2. Að elda einhæft og sérfæði

Þyngdartap snýst EKKI um einhæfa fæðu, TAKMARKAÐ fæðuval eða KVÖL.

Bæði getur einhæf fæða skapað fordóma og sérfæði orðið gríðarlega tímafrekt.

Segjum að þú ákveðir að borða máltíð sem er með jafnvægi af kolvetnum, próteinum og fitu. Við það hækkar dópamín stig í líkamanum og vellíðunar tilfinningin rís.

Ef þú neytir sömu máltíðar síðan aftur og aftur, marga daga í röð mun dópamín stigið hækka minna og minna, og endanlega fara hverfandi.

Heilinn tekur sérstaklega eftir nýjum og spennandi fæðutegundum og mismunandi brögðum.

Hann þróaðist á þann hátt í fyrsta lagi til þess að finna fæðu sem hefur úldnað og í öðru lagi vegna þess að því fjörbreyttari mat sem við borðum því líklegri erum við til þess að fá öll þau næringarefni sem við þurfum (samkvæmt Dr. Nicole Avena höfundur bókar “Af hverju megrunarkúrinn virkar ekki”).

Til að halda þessu gangandi þurfum við stöðugt að borða fjölbreyttan mat

Góðu fréttirnar eru þær að það er hægt að upplifa þyngdartap, orku og vellíðan með spennandi nýjum fæðukostum sem gefa þér vellíðan og ánægju og seddu, eitthvað sem við gerum í Nýtt líf og Ný þú þjálfun.

3. Uppsöfnuð eiturefni

Líkaminn vill vera í sínu besta ástandi, en oft þegar líkami okkar er fullur af eiturefnum frá óæskilegri fæðu, streitu, lífsstíl, umhverfi eða ekki nægri hreyfingu getur það valdið því að þyngd haldist í stað, verkir blossa upp og við finnum okkur síþreytt.

Ef þetta ert þú þá gætir þú upplifað:

Orkuleysi, líkamskvilla, astma, exemi, höfuðverk, þyngdaraukningu, þyngdarstöðnun, verki í vöðvum og liðum, pirring, andlegri depurð, hreyfileysi.

Við það að hreinsa líkamann nær hann að koma sér í sitt æskilega ástand og því algengur fylgifiskur að margir upplifa að sykurlöngun hverfur, þyngdin fer niður á við, við getum upplifað mikla orku og heilsa okkar bættist til muna.

frustration image

4. Að velja skammtímalausn í stað lífsstílsbreytingu

77% þeirra sem hefja megr­un­ar­kúr þyngj­ast aft­ur eft­ir fyrstu vik­una og 33-66% sem fara í megr­un­ar­kúr enda með því að þyngj­ast um meira en áður en þau byrjuðu megr­un­ar­kúr­inn

Bendir önnur rannsókn við Yale háskóla að þetta hlutfall sé hærra og að 95% þeirra sem fara í megrun enda á því að þyngjast aftur um þessi fyrr nefndu kíló innan nokkurra mánaða.

Flest okkar kannast við að prófa kúr, léttast og síðan enda á því að þyngdast aftur um þau kíló ef ekki fleiri.

En vissir þú að því oftar sem þú ferð í megrun því meiri verður fitusöfnunin í líkamanum hverju sinni!   

Þetta komst Dr Keith Ayodd læknir frá Einstein College of Medicine að og talar um að við þetta geti streita myndast í lifur sem veldur fitusöfnun og hefur einnig slæm áhrif á teygjanleika húðar og slagæða- og stoðkerfi líkamans.

Þessi rokkandi þyngd getur verið sérstaklega hættuleg fyrir okkur konur og hefur hún áhrif á ónæmiskerfið og hversu vel búinn líkaminn er gegn veikindum, jafnvel alvarlegum sjúkdómum.

Því þarf að finna hvað gefur okkur árangur ekki bara í dag, heldur áfram út lífið, þá sem við erum sátt með og gefur okkur jafnvægi.

HÉR er hægt að lesa pistla Júlíu á Smartlandi Mörtu Maríu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál