Þjálfari Khloé Kardashian leysir frá skjóðunni

Khloé hefur aldrei verið í betra formi.
Khloé hefur aldrei verið í betra formi.

Gunnar Petersen, einkaþjálfari stjarnanna, hefur greint frá því hvað hann gerði til að koma raunveruleikastjörnunni Khloé Kardashian í toppform.

Kardashian ákvað að taka líf sitt í gegn eftir að hjónaband hennar og Lamar Odom rann út í sandinn, en hún hafði jafnan verið kölluð feita systirin.

„Ég held hún hafi hugsað með sér að hún ætlaði að taka sig á í lífinu og hún hafi áttað sig á að hún væri að hreinsa út svo mikið af neikvæðum tilfinningum,“ sagði Petersen í samtali við Daily Mail.

Til þess að koma stjörnunni í form, og á sama tíma að halda línunum hennar, setti þjálfarinn saman sérstakt æfingakerfi. Þar var til að mynda einblínt á hnébeygjur, framstig og box til að æfa stærstu vöðvahópana. Stjarnan var einnig látin gera upphífingar, armbeygjur og axlapressur til þess að æfa efri hluta líkamans.

More looks no hooks!

A video posted by Gunnar Peterson (@gunnarfitness) on Oct 1, 2015 at 11:12am PDT

Gunnar Petersen sýndi stjörnunni enga linkind.
Gunnar Petersen sýndi stjörnunni enga linkind. Skjáskot / Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál