Þorbjörg óánægð með heilsuþáttinn á RÚV

Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og næringaþerapisti.
Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og næringaþerapisti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og næringaþerapisti varð fyrir miklum vonbrigðum með þáttinn Sannleikurinn um heilsufæði eða Truth about Healthy Eating eins og hann heitir á ensku sem sýndur var á RÚV í gærkvöldi. Svali og Svavar á K100 hringdu í Þorbjörgu í morgun og spurðu hana spjörunum úr. 

„Ég var búin að setja mig í stellingar því ég hélt ég væri að fara að horfa á almennilegan þátt. Ég varð fyrir vonbrigðum því þátturinn var svo illa gerður,“ segir Þorbjörg. 

Þorbjörgu fannst merkilegt að það hafi ekki verið minnst á sykur.

„Sykur er eitt af því sem við þurfum að ræða þegar kemur að hollustu. Hann hefur áhrif á allt hvað varðar okkar heilsu,“ segir hún. 

Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á viðtalið: 

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál