Er nóg að telja bara kaloríur?

Margir telja koloríur til þess að grennast.
Margir telja koloríur til þess að grennast. mbl.is/Thinkstockphotos

Einkaþjálfarinn og heilsumarkþjálfinn Sara Barðdal segir það skipta miklu máli að vera meðvitaður um hvaðan kaloríurnar sem við innbyrðum koma, ekki er nóg að hugsa bara um kaloríufjölda. Þetta fer Sara yfir í pistli á heimasíðu sinni. 

Í umræðunni í dag finnst mér mikið talað um hitaeiningar og kaloríutalningu. Margir þjálfarar mæla með að fólk telji bara kaloríurnar sínar og nái þannig árangri með því að halda innbyrtum kaloríum færri en því sem líkaminn brennir.

Allt gott og blessað með það, þannig virkar lögmálið, en þegar við fókusum bara á kaloríur erum við ekki að gleyma mikilvægu atriði þegar kemur að heilbrigðum lífsstíl?

Hvaðan kaloríurnar koma og hvernig áhrif þær hafa á líkama okkar og alla starfsemi hans er að mínu mati miklu mikilvægara en að ná að halda sér innan 1.500 kcal, 2.000 kcal eða hvert sem markmið hvers og eins er.

Því maturinn sem þú setur inn í líkama þinn er ekki bara bensínið þitt, hann er uppbyggður af efnasamböndum sem hafa áhrif á það hvernig líkami þinn starfar, hvernig þér líður yfir daginn, hvernig þú tekur upp næringarefni og einnig hvernig genatjáningin þín kemur fram.

Sara Barðdal fer yfir málin í pistli sínum.
Sara Barðdal fer yfir málin í pistli sínum.

Við fæðumst öll með ákveðin DNA sem við fáum frá forfeðrum okkar, en hvernig genatjáningin verður, er 90% í okkar höndum, og þú getur haft áhrif á það hvernig lykilgen sem stýra þyngdaraukningu, öldrun, streituþoli, geðheilsu og langtímaheilsu koma fram hjá þér.

Við erum rétt svo að byrja að kynnast þessum heimi DNA og hvernig við getum haft áhrif á tjáningu genanna okkar, en strax vitum við samt svo mikið.

Það hefur til dæmis verið fundið gen sem er kallað PPARy sem stýrir því hvernig líkaminn bregst við mismunandi fitu. Ein rannsókn sýndi fram að konum sem hafa þetta gen gengur betur að missa fitu ef þær borða meira en 50% af omega 3 og 6 frá fiski og hnetum (í staðinn fyrir kjöt til dæmis).

Annað gen sem er kallað Clock Gene (Circadian locomotor output cycles kaput gene) hefur áhrif á hringrás svefns og vöku sem þýðir það að ef þú ert ekki með nægilega reglulegan og góðan svefn þá ertu með hærra hlutfall af ghrelin í blóðinu sem gerir þig svengri og þú átt erfiðara með að missa þyngd.

Það er alltof ríkjandi í samfélaginu að við einblínum aðeins á útlit og margir fara í miklar öfgar til þess að ná fram ákveðinni líkamstýpu, sama hverjar afleiðingarnar eru. Við ættum miklu frekar að horfa á heilbrigðan lífsstíl út frá því markmiði að minnka líkur á veikindum eins og krabbameini, hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki 2 og auka líkur á því að vera heilbrigður í ellinni og geta notið lífsins með börnum og barnabörnum.

Því það sem við gerum í dag hefur áhrif á líkamann eftir 20, 30 eða 40 ár, maður þarf því að muna að vera þakklát/ur fyrir hann eins og hann er í dag og koma fram við hann af virðingu, því heilsan er ekki sjálfsögð og það er hundleiðinlegt að missa hana. Eftir að hafa upplifað það sjálf að þurfa að horfa á móuir mína missa heilsuna og tapa baráttunni við krabbamein, þá veit ég hvað þetta er ömurlegt og sterkasta vopnið er forvarnir!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál