Lady Gaga borgaði tæpa þrjá milljarða fyrir þetta hús

Heimili Lady Gaga er glæsilegt með eindæmum.
Heimili Lady Gaga er glæsilegt með eindæmum. Skjáskot af harpersbazaar.com

Söngkonan Lady Gaga á sand af seðlum en hennar nýjasta fjárfesting er glæsihús í Malibu í Kaliforníu sem Gaga reiddi fram tæpa þrjá milljarða króna fyrir.

Húsið er á besta stað en úr því er glæsilegt útsýni yfir Zuma-ströndina.

Húsið, sem hannað er af arkitektinum Steve Giannetti, er stórt en því fylgir einnig stærðarinnar landsvæði. Í húsinu eru fimm svefnherbergi, sjö baðherbergi, keiluhöll, hesthús, saltvatns-sundlaug og vínkjallari. Húsið var byggt árið 2005.

Fleiri myndir af nýju heimili Lady Gaga má finna á heimasíðu Harper's Bazaar.

Skjáskot af heimasíðu Harpers Bazaar. Nýja heimili Lady Gaga inniheldur …
Skjáskot af heimasíðu Harpers Bazaar. Nýja heimili Lady Gaga inniheldur keiluhöll. Skjáskot af harpersbazaar.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál