Flestir láta sér duga að hafa eina eyju í eldhúsinu ef það er þá pláss fyrir hana. Í þessu fantaflotta húsi eru tvær eyjur. Húsið er hannað af Thellend Fortin Architectes sem er arkitektastofa en húsið sjálft er í Montreal í Kanada.
Það var upphaflega byggt í kringum 1960 en tekið í gegn nýlega með þessum góða árangri. Gluggarnir eru sérlega flottir og málaðir í svörtu á meðan innréttingarnar eru hvítar.