Goðsagnakenndi gítarleikarinn Slash á heima í þessu 1000 fermetra húsi. Húsið er áberandi og íburðamikið, rétt eins og Slash sjálfur. Djúpir og dökkir litir eru áberandi og veggfóður með óvenjulegri áferð ráða ríkjum í öllum herbergjum hússins.
Það var fyrrverandi eiginkona Slash, Perla Hudson, sem sá um að innrétta heimilið. Glingur, mynstur og eftirtektavert stofustáss flæðir um húsið. Útkoman er brjáluð.
Samkvæmt heimildum fasteignavefsins Zillow er Slash nú að reyna að selja húsið sem er staðsett í Beverly Hills. Baðherbergin eru átta, svefnherbergin eru sjö og ásett verð er 1,5 milljarður króna. Auðvitað fylgir stór sundlaus húsinu ásamt upptökuveri og notalegum bar svo eitthvað sé nefnt.
Smekklegt eða ekki, það má deila um það.