Náðu loksins að selja fyrir 2,5 milljarða

Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick náðu loksins að selja.
Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick náðu loksins að selja. Zillow/AFP

Leikkonan Sarah Jessica Parker og eiginmaður hennar, Matthew Broderick, hafa nú loksins náð að selja glæsilegt hús sitt sem er á besta stað í New York. Hjónin setti eignina á sölu í fyrra en náðu þá ekki að losna við hana.

Ásett verð fyrir 630 fermetra húsið var tæplega 2,5 milljarðar er fram kemur á fasteignavefnum Zillow.com. Ástæðan fyrir að þau vildu losna við húsið mun vera sú að þau hafa ekki verið að verja miklum tíma í New York.

Nýju eigendurnir eru eflaust alsælir með nýja heimilið því það hefur að geyma sex svefnherbergi, sjö eldstæði og tvö fataherbergi svo eitthvað sé nefnt.

Sarah Jessica Parker þarf tvö fataherbergi

Eldhúsið er guðdómlegt.
Eldhúsið er guðdómlegt. zillow.com
Í húsinu eru sjö eldstæði, þar af eitt í hjónaherberginu.
Í húsinu eru sjö eldstæði, þar af eitt í hjónaherberginu. zillow.com
Frístandandi baðkarið setur skemmtilegan svip á baðgerbergið.
Frístandandi baðkarið setur skemmtilegan svip á baðgerbergið. zillow.com
Að sjálfsögðu átti Sara Jessica Parker rúmgott fataherbergi.
Að sjálfsögðu átti Sara Jessica Parker rúmgott fataherbergi. zillow.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál