Við Garðatorg í Garðabæ standa glænýjar glæsiíbúðir í flottum 4.-5. hæða húsum með lyftum. Íbúðirnar eru afar vandaðar og smekklega innréttaðar. Ásett verð er 49,3 milljónir króna.
Það er fasteignasalan Eignamiðlun sem hefur íbúðirnar til sölu. „Frágangur íbúða verður veglegur og vandaður, íbúðum verður skilað fullbúnum, án gólfefna, fyrir utan gólf í baðherbergjum og þvottahúsum sem verða flísalögð. Í húsinu eru 42 íbúðir frá 75 m2 til 190 m2 auk stæðis í bílageymslu. Við hönnun íbúðanna var leitast við að hámarka notagildi íbúða og nýta stórbrotið útsýni sem staðsetning húsanna býður uppá. Aukin lofthæð er á efstu hæðum, tvennar svalir eru með mörgum íbúðum og stórar þaksvalir í nokkrum þeirra. Mikill fjöldi bílastæða,“ segir á fasteignavef mbl.is.
Meðfylgjandi myndir eru af íbúð númer 0201. Hún er þriggja herbergja er 104 fermetrar. Bílastæði fylgir íbúðinni sem og geymsla. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi.
Virkilega smart. Fasteignasölurnar TORG og Miklaborg eru líka með íbúðir á sölu í sömu byggingu.